Aðeins um mig
Ég heiti Margrét Linda og er fædd 1986 í Reykjavík og ólst upp í Árbænum en fluttist til Neskaupstaðar 2007 eftir að hafa kynnst manninum mínum sem er fæddur og uppalinn þar. Við höfum verið í sambúð í 12 ár og eigum saman tvo stráka fædda 2009 og 2012. Sá eldri heitir Aron Ingi og yngri Emil Ingi.
Helstu áhugamál mín eru hestamennska, skíða, útivera og ég hef sérstakan áhuga á því að finna upp nýja hluti og þróa nýjar aðferðir.
Í dag vinn ég hjá Alcoa Fjarðaál og hef gert síðan 2007 og á ég því 10 ára starfsafmæli í ár. Ég hóf háskólagöngu í haust 2016 og vinn ég fulla vinnu með því námi. Það var hrein tilviljun að ég skyldi sækja um námið þar sem ég var ekki beint með háskólanám í huga. Ég var bara eitthvað að ráfa um á netinu og datt inn á þessa skemmtilegu braut sem verið var að bjóða uppá í fyrsta skipti í fjarnámi það er s.s. kennarafræði með íþróttir sem kjörsvið. Ég tók þá ákvörðun að prófa að sækja um og fékk inngöngu.
Ég væri að ljúga ef ég segði að það hafi verið ekkert mál að byrja í skóla aftur eftir 10 ára pásu, en með því að skipuleggja sig vel og eiga frábæra samnemendur að gekk þetta betur en ég átti von á. Námið virðist vera það sem ég var að leita eftir og það skemmtilega við allt er að ég sé mörg tækifæri til að þróa og bæta nám og hreyfingu barna.
(skrifað 11.1.2017)