Upplýsingatækni á vettvangi íslensks skólastarfs
Nesskóli í Neskaupstað
Nesskóli í Neskaupstað
Tölvubúnaður og upplýsingatækni í Nesskóla
Verkefnið:
Verkefnið sem átti að leysa var að skoða hvernig skólinn sem ég valdi mér nýtti upplýsingartækni í skólastarfið, skólinn sem ég valdi er Nesskóli í Neskaupstað. Ég tók viðtöl við kennara í grunnskólanum til að afla mér upplýsinga um hvernig þeir nota tölvubúnað og upplýsingartækni í skólanum. Dæmi um spurningar sem ég lagði fyrir kennarana voru, hvenær byrja börn að læra á tölvur, hafa börn aðgang að spjaldtölvum, hvað eyða þau miklum tíma í tölvum, er góð nettenging, er virk heimasíða fyrir skólan o.s.frv.
Búnaður skólans
Skólinn er með 20 tölvur í sérstakri tölvu stofu og með hverri tölvu er til heyrnartól. Öll stig hafa aðgang að spjaldtölvum og á skólinn í kringum 60-70 spjaldtölvur (I pad). Í öllum kennslustofum er búið að setja upp skjávarpa og tjald til að varpa upp á. Það er þráðlaust net í skólanum en samkvæmt upplýsingum sem ég fékk er það oft mjög hægt og misjafnt eftir staðsetningu.
Það er umsjónarmaður sem sér til þess að búnaðurinn sé í lagi og uppfærður. Hann á einnig að sjá til þess að heimasíða skólans sé uppfærð.
Það er þó gaman að segja frá því að draumur skólastjórans er að útrýma tölvustofunni og að nemendur hafi aðgang að fatölvum í staðinn.
Yngstastigi (1-4 bekkur):
Nemendur 1-4 bekkjar hafa 40 mínútur í tölvutíma á viku sem er inn í stundatöflu. Þar læra nemendur á borðtölvu sem eru í sér stofu í skólanum. Tölvurnar eru 20 talsins og nú verið var fjárfest í heyrnartólum sem tilheyrir hverri tölvu. Það setur oft strik í reikninginn að kennarar geta ekki unnið með öllum nemendum inn á netinu í einu því það er mjög hægvirkt. Eftir því sem nemendurnir verða eldri minnkar þolinmæðin fyrir hægvirkum borðtölvum.
Kennari sem ég tók viðtal við kennir 2.bekk og notar tölvustofuna til að leyfa krökkunum að fikra sig áfram, læra á word og skoða sig um á netinu. Spjaldtölvurnar eru mikið notaðar og er tafla þar sem kennarar panta spjaldtölvurnar til kennslu. Kennarinn sem ég ræddi við notar þetta mikið í byrjendalæsi þegar þau fara í svokallaða hringekkju. Kennarinn notar einnig mikið skjávarpan og varpar upp öllu því sem henni dettur í hug sem tengist því námsefni sem hún er að kenna hverju sinni.
Miðstigi (5-7 bekkur):
Nemendur 5-7 bekkjar hafa 40 mínútur í tölvutíma í viku inn í stundatöflu. Þar geta kennarar nýtt sér aðstöðu í tölvu stofu. Kennarar haf þó mjög frjálsar hendur með tölvukennsluna og fer mikið af henni fram í gegnum spjaldtölvur. Miðstig hefur aðgang að spjaldtövum eins og yngstastig og þar er sambærilegt kerfi, skráð er á töflu til að taka þær frá til kennslu.
Kennarinn sem ég ræddi við á miðstigi er að kenna 6.bekk en hún hafði sótt um styrk um að fá spjaldtövlur fyrir sinn bekk sem fór í gegn og er það eini bekkurinn sem á sínar eigin spjaldtölvur. Kennarinn sem ég ræddi við notar þær nánast daglega í skólastarfinu. Það sem veldur mestu vandræðum við kennsluna í þeim er nettengingin, hún er oft mjög hæg og tölvurnar eiga til með að frjósa. Forritin sem hún notar mikið er; micro bit, bitsbord, simmertwinsatschool.com, hobscotch o.flr. Hún kennir nemendum sínum einni á google og hvernig hægt er að nota docs skjöl til að vinna hópverkefni.
Heimasíða skólans
Heimasíða skólans er til og fullt af upplýsingum inn á henni. Flestar upplýsingar inn á henni eru orðnar gamalar og langt síðan þær hafa verið uppfærðar t.d. síðasta frétt var sett inn 6.okt. 2016 og matseðill janúars er enn inni og febrúar að verða hálfnaður. Það er ekki mikið um myndir úr skólastarfinu en þó eitthvað úr einstaka viðburðum. Það er listi yfir alla kennara og netfang hjá þeim og einnig starfsheiti sem er mjög flott en þó hefur það ekki verið uppfært í einhvern tíma. Inn á heimasíðu skólans er námskrá allra stiga en það hefur ekki verið uppfært síðan 2015. Inn á heimasíðunni er hægt að fara beint inn á Mentor en það er forrit sem skólinn notar til að skrá upplýsingar um nemendur og senda skilaboð til foreldra. Einnig geta kennarar notað það til að halda utan um gögn hjá sér. Kennararnir virðast nota Mentor mismikið en allir eitthvað. Annar kennarana sem ég ræddi við notar eingöngu Mentor til að skrá mætingu og er alveg hættur að vera með skráningarblöð (kladda).
Báðir kennararnir sem ég tók viðtal við ákvaðu að fara nýja leið þar sem þeir höfðu verið búnir aða safna mikið af myndum af nemendum sýnum í daglegu skólastarfi í símann sinn og vildu gjarnan deila þeim með foreldrum. Þær ákvaðu því að fá leyfi frá öllum foreldrum til að stofna facebook hóp fyrir bekkinn sem væri lokaður og setja þar inn allar myndir úr skólastarfi þeirra. Það samþykktu allir foreldrar og nú geta þeir skoðað myndir af börnunum sínum inn á facebook hópnum í daglegu skólastarfi
Samantekt
Eftir viðtalið komst ég að því að tæknin er notuð en gæti eflaust verið betri og meiri. Það er gott að vita til þess að umsjónarmaður sjái um að halda utan um búnaðinn og sjá til þess að hann sé í lagi. Annar kennarana sem ég tók viðtalið við talar um það hafi verið bylting að fá skjávarpa í stofuna, sem ég skil mæta vel. Í dag er hægt að googla og finna margar áhugaverðar síður á netinu og því stór munur að geta varpað því beint upp á tjald með því einu að tengja snúru við tölvuna. Það mætti eflaust bæta úr því að kennarar fengju námskeið til að læra betur á spjaldtölvurnar og annan tölvubúnað þar sem það er mikil nýjung fyrir suma. Með því fáum við betri kennslu á þau tæki sem eru ný og notum þau rétt. Annar kennarinn sem ég tók viðtalið við fannst henni vanta betri þekkingu til að geta nýtt þessa tækni til fulls en hin hafði aftur á móti unnið mörg verkefni tengd tövlumálum og sótt námskeið.
Heimasíðan er ekki fullnýtt og að mínu mati mætti koma nemendum meira að og einnig kennurum (slóð inná heimasíðuna: http://www.nesskoli.is/is/forsida). Að mínu mati er óuppfærð heimasíða sama og enginn heimasíða. Það virðist vera að Mentor hafi tekið yfir þann hluta að koma skilaboðum til foreldra og upplýsa um viðburði sem nálgast. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég fékk er umsjónarmaður með heimasíðunni sem getur sett inn og breytt ásamt skólastjóranum. Ég tel því mikið tækifæri til að nýta heimasíðuna betur og halda henni uppfærðri, það virðist oft gerast að ef hlutirnir eru ekki uppfærðir nema að hluta til er enginn sem tekur mark á þeim og hætta því að skoða hana.
Samkvæmt aðalnámskrá er mikilvægt að miðla upplýsingum til foreldra um skólastarfið og áætlanir sem liggja fyrir um starfsemina. Nesskóli notar mentor til að miðla upplýsingum og gerir það mjög vel. Kennarar senda póst til foreldra í gegnum mentor um hvaða verkefni voru unnin í vikunni jafnt og upplýsingar um sérstaka viðburði. Eins sendir skólastjórin póst reglulega póst í gegnum Mentor um ýmis málefni sem eru um að vera í skólanum, heimsóknir og viðburði. Heimasíðan er einn miðill sem gæti verið nýttur betur, hún væri flottur miðill til að koma á framfæri viðburðum sem eru í sal og heimsóknir. Fréttaveitan er lítið uppfærð og eins og fyrr sagði er síðasta frétt sett inn 3.október 2016 og þar á undan 1.september 2016.
Upplýsingar og tæknimenntun er líklega misjöfn eftir kennurum en aðstæður og búnaður virðist vera til staðar og ég sé stæðstu tækifærin í að efla kennara sem kunna lítið á t.d. spjaldtölvur og forrit með námskeiðum. Kennararnir sem ég ræddi við hafa og sögðu að þeir hefðu mjög frjálsar hendur hvernig þeir kenna og þeim er treyst fyrir því að koma efninu sem á að kenna samkvæmt aðalnámskrá frá sér. Það tel ég mjög mikilvægt því meiri tækifæri eru til þróunar og fjölbreyttni í skólastarfi ef það er ekki allt "meitlað í stein". Með trausti og frelsi til að kenna á þann hátt sem kennarar halda að sé besta aðferðin fá þeir tækifæri til að eflast i starfi og þróast.
Heimildarskrá
Aðalnámskrá grunnskóla 2011: Almennur hluti /2011:
Nesskóli. (e.d.).Velkomin á heimasíðu nesskóla. Sótt af http://www.nesskoli.is/is/forsida
Myndasafn
Mynd1: Myndin er af Nesskóli. 2013. Sótt af http://vefmyndavel.visitfjardabyggd.is/Forsida/Vidburdirfrettirogtilkynningar/Lesafrettirogvidburdir/dddd
Mynd2: Guðlaug Rangarsdóttir. Ljósmynd tekin af nemendum í 2.bekk í Nesskóla. Október 2016.
Skrifað 16.2.2017